Blogg

25.9.2009

Ég lofa að segja ykkur ef eitthvað er að frétta,

...trúið mér - ef eitthvað jákvætt gerist mun ég án nokkurs vafa hlaupa upp á hæstu hæð Illinois fylkis (án þess að blása úr nös því sú hæsta er álíka Bóbabrekkunni) og garga fréttunum í gjallarhorn!

Ég finn að þessar tilkynningar mínar um umsóknir út og suður byggja upp væntingar hjá ykkur, kæru vinir og ættingjar, og nógu erfitt þykir mér að taka á móti endalausum höfnunum án þess að færa þær yfir á ykkur líka. Þetta er svo hrútfúlt ferli, og ég viðurkenni að það er farið að taka á, að lifa alla daga í algerri óvissu um hvað framundan er. Við erum ekki farin að gera neitt róttækt nema það að við náðum að laga til í peningamálum með því að taka lán frá eigin lífeyrissjóði sem við svo vonandi munum geta greitt okkur sjálfum til baka skammarlaust! Þannig að við náum að fljóta eitthvað áfram á atvinnuleysisbótunum og þessari viðbót!

Haustið hér er farið að sýna sig smá, trén aðeins farin að skreyta sig fallegum litum,  myrkrið byrjar fyrr og endist lengur á morgnana. Mér finnst haustið yndislegt - það er eitthvað svo ferskt loftið, þó að það sé ekki ennþá kominn svalur andvari á mínar slóðir. Það þarf enn að slá grasið og illgresið vex sem enginn sé morgundagurinn.  Sumir eiturharðir hrekkjavökuaðdáendur eru farnir að skreyta hjá sér, ég mun líklega ekki skreyta mikið þetta árið - því mitt skraut hefur hingað til verið fersk grasker og "mums" plöntur sem blómstra svo fallega á haustin - er að halda fast í aurana sko!

Góða helgi

Bestu kveðjur
Stella

Skrifað 25.9.2009 kl. 8:00 af Stellu sléttubúa

Bein slóð á færslu

7 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

24.9.2009

Nú liggur illa á mér...

Skoða nánar

17.9.2009

"Ég skal sko segja ykkur

Skoða nánar

10.9.2009

Nei heijj sagði hún Alma mín,

Skoða nánar

6.9.2009

Best að hafa svona framhaldssögustíl á þessu,

Skoða nánar

2.9.2009

Ég ætla prófa skrifa smá,

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 1
Gestir í dag: 1
Flettingar í gær: 95
Gestir í gær: 19
Samtals flettingar: 116702
Samtals gestir: 26443
Tölur uppfærðar: 14.3.2010 00:11:14
clockhere
eXTReMe Tracker