Blogg

31.3.2009

Verð bara að skella inn einum blaðurbita áður en apríl mánuður skellur í garð,

 - annars liggur teljari síðunnar í algerri afslöppun. Ég sit núna á óvæntum gefnum tíma og má til með sóa honum í eitthvað sem ekki er gagnlegt og gæti sparað mér stress síðar - um að gera að sanna fyrir heiminum öllum að sjálfssagi er ekki mín sterka hlið. Ekki að ég þurfi að segja ykkur reglulegu gestum neitt um það, ég er svo löngu búin að bjóða ykkur alla leið inn að mínum beinum.  Krakkarnir eru í vorfríi þessa vikuna, ekki ég, og ég fékk Miguel gamla til að koma heim frá vinnu um hádegi til að leysa mig af svo ég kæmist í skólan. Ég kom þó þar að læstum dyrum og prófessor Cotton hefur enn ekki sent neina útskýringu á skrópi sínu - það er nokkuð ljóst að á okkur nemendur yrði baulað ef við létum ekki sjá okkur tilkynningarlaust! En þó hún sé ekki mitt uppáhald þá er þetta nú ekki alveg samkvæmt karakter svo ég vona að það liggi ekki nein alvarleg leiðindarástæða fyrir fjarveru hennar!

 

Hér er skítaveður, já ég hef ekkert að segja svo leyfið mér að tuða smá, það rignir bara og er frekar kalt úti - það meira segja snjóaði á sunnudaginn, haldið þið að það sé! Mig er farið að sárvanta sólarorku! Þó svo að ég finni að dagarnir séu að lengjast þá vantar samt sólarbirtuna til að maður finni almennilega fyrir því þegar vorið sparkar í veluppfyllta afturendann og ýti honum af stað í vorverkin er bræða skulu alla þá mör er á botninn hafa bætst...

 

Jæja ég ætlaði að nýta tíman sem ég á, öllu jöfnu, milli kennslustunda til að klára ritgerð fyrir sögutíma kvöldsins, svo að ég ætti að sinna þeim skrifum í stað þessara en ég bara mátti til með að heilsa aðeins upp á ykkur ...

 

Bestu kveðjur

Stella

Skrifað 31.3.2009 kl. 15:00 af Stellu sléttubúa

Bein slóð á færslu

5 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

27.3.2009

Jæja þá er stóra helgin að renna í garð,

Skoða nánar

24.3.2009

Ekki er allt gull sem glóir - þó gull sé!

Skoða nánar

18.3.2009

It´s a small world after all...

Skoða nánar

14.3.2009

Tökum sturtu!

Skoða nánar

11.3.2009

Mig langar svo að blogga,

Skoða nánar

8.3.2009

Ég skal, vil og ætla að standa mig með bloggið,

Skoða nánar

4.3.2009

Rosalega er gott að eiga einn og einn dag,

Skoða nánar

1.3.2009

Ég er frekar aulaleg að sjá núna,

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 125
Gestir í dag: 21
Flettingar í gær: 160
Gestir í gær: 40
Samtals flettingar: 117409
Samtals gestir: 26595
Tölur uppfærðar: 19.3.2010 15:58:14
clockhere
eXTReMe Tracker