Blogg

29.1.2009

Ég get verið alger lygari og farið á bak eigin orða,

 

... og því lýg ég ekki!

 

Sagðist ég ekki ætla sinna heimavinnu strax að skólatímum loknum og alls ekki vinna verkin á síðustu mínútu?  Iss, ég var bara ljúga að sjálfri mér og jú að ykkur líka, því ég raðaði bókunum bara til á borðinu og hef svo ekki opnað þær. Enginn sjálfsagi hér hjá mér, akkúrat enginn!

 

En ég hef átt góða viku það sem af er, þó ég sé að skríða ein í bólið að kveldi! Ef allt gengur vel hjá Miguel í Kansas ætti þetta að verða síðasta ferðin - allra síðasta ferðin. Svo ég ætla ekki að væla of mikið þó hann verði þar um helgina og út næstu viku, bara væla smá samt...

 

Alma, óðum að verða tannlausa, hefur haft eitt og annað að segja undanfarið - og segir allt sitt með ofur ljúfum sssssslegum hljómi. Hún hefur ekki alveg farið í troðnu slóðir systkina sinna í leit að sannleikanum um það hvaðan blessuð börnin koma.  Hún vill endilega að ég, í orðsins fyllstu merkingu, sýni henni nákvæmilega hvaðan börnin koma út frá maganum - mig vantar svo að eiga botnlangaör þessa dagana, naflinn er nefnilega ekki að segja sig hjá henni! Hún vildi líka vita af hverju mömmur fá alltaf hjartaáföll þegar börnin koma út; "cause they just stop breathing and then they scream"!  Held það sé kominn tími á að slökkva alveg á sjónvarpinu...

 

Hún átti líka góðan leik í umræðum við bróður sinn fyrir skömmu. Hann virðist alveg hafa  gleymt gömlu draumunum sínum um að eiga haug af börnum í mínivan,  því er við vorum að aka um,  nýverið,  þá rak Anton  augun í einhvern rennilegan kagga og lýsti því yfir að svona bíl ætlaði hann sko að eiga þegar hann yrði stór! Alma leit á bílinn og spurði hann hvort hann ætlaði ekki að verða pabbi. Jú Anton hélt það, einhverntímann... Sú stutta tilkynnti honum þá að ef hann yrði pabbi þá fengi hann bara lítinn bíl "cause all papi´s have little cars - only mamma´s have big cars" og bætti svo við " I am gonna be  a mamma". Við Miguel áttum svo bágt með okkur. En svona í alvöru ef vel er að gáð hér í okkar umhverfi, þá eru flestir pabbarnir að snattast til og frá vinnu á litlum bílum - meðan mömmurnar rúnta um á fjallatrukkum og litlum "rútum".

 

Jæja, ég þarf að koma ormunum mínum í háttinn og ég held, bara held, að ég sinni sögubókunum við ljóstýruna frá náttborðslampanum - held það bara!

 

Gleðilegan föstudag (ohhh gat það nú verið, ég þarf að draga allt ruslið niður heimkeyrsluna í fyrramálið - ég sver það, ég held að Miguel passi upp á það að vera að heiman á föstudögum)

 

Kveðjur

Stella

 

Skrifað 29.1.2009 kl. 20:00 af Stellu sléttubúa

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

28.1.2009

Það er bara miðvikudagur, 28. janúar 2009,

Skoða nánar

26.1.2009

Ritgerð, ó mig auma,

Skoða nánar

23.1.2009

Verð að flýta mér að skrifa hér inn,

Skoða nánar

19.1.2009

Ég er alltaf voðalega stórorð að hausti...

Skoða nánar

15.1.2009

Nú er frost á sléttum, frýs í æðum blóð...

Skoða nánar

11.1.2009

Halló, aaallló, llllllló....

Skoða nánar

9.1.2009

Tilveran getur verið svo dásamleg...

Skoða nánar

7.1.2009

Litlu hvítu perlurnar...

Skoða nánar

6.1.2009

Þrettándinn...

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 59
Gestir í dag: 14
Flettingar í gær: 92
Gestir í gær: 25
Samtals flettingar: 116967
Samtals gestir: 26502
Tölur uppfærðar: 16.3.2010 14:01:17
clockhere
eXTReMe Tracker