Blogg

31.10.2008

Ég læt sem það sé ekkert um að vera,

...en það er bara ekki rétt - það er alltaf eitthvað! En ég næ ekki að halda utan um hugsanir mínar til að koma einhverju frá mér í samhengi hingað  inn á síðuna! Hugurinn er út um allt, man ekki neitt stundinni lengur - er bara spastísk ef einhverju nafni má nefna  lætin í mér...

 

Skólinn á hug minn allann þessa dagana, ekki þó að ég sé svo mikið að binda mig við heimavinnu - bara ef ég er ekki að sinna heimavinnu er ég með samviskubit yfir því að vera ekki að sinna heimavinnu! Og heimavinnan er endalaus - ég gæti unnið alla daga, og nætur en samt ekki klárað eitt né neitt, dálítið þreytandi til lengdar...

 

Ég er líka voðalega skapandi þessa dagana, hugmyndir um ný verkefni vakna við hverja nýja mínútu - þó bara hugmyndir sem tengjast einhverju nýju sem mig vantar í húsið, hugmyndir um húsgögn eða nýja veggliti. Lýsingar-logo-verkefnið sem bíður mín vaknar ekki, er ekki að ná að skapa neitt af því sem nauðsynlegt er! Ég sagði ykkur að ég væri spastísk...

 

Krökkunum gengur vel, það voru strengjatónleikar hjá Arínu strengjasveit í lok síðustu viku - bara yndislegt! Ég er ekki mikið fyrir klassíska strengjamúsík, hlusta bara ekki á slíkt þegar ég fæ tækifæri til að hlusta á músík. En það er allt annað þegar maður fær þessa músík beint í æð, svona sjón og heyrn í bland! Ég verð afskaplega meyr og einhverjar óútskýranlegar hugsanir hellast yfir mig. Ég tárast og næ stundum varla andanum þegar hæstu tónarnir heyrast. Gæti ekki verið stoltari af gellunni, hún er að standa sig svo vel! Það komu fjórðungseinkunnir heim fyrr í vikunni - og skvísan er með meðaleinkunina í 92%!

 

Anton hefur tekið sig heilmikið á, skilar heim langflestum verkefnum í þetta 85-90 % sem er stórglæsilegt! Þó eru áminningar á langflestum blöðunum frá hans kennara um að  hann eigi ekki  að teikna fígúrur á prófblöðin - hann lifir og hrærist í teiknimyndafígúrum sem hann skapar sjálfur og getur bara engan veginn haft pappír undir höndum án þess að einhverjar teikningar kallist ekki fram. Ég þarf að fara koma tölvunni upp aftur - búin að flísaleggja skrifstofuna, á bara eftir að setja inn borðið (sem ég er að strippa og endurmála) og koma tölvunni með öllum sínum snúrum og fylgihlutum þar inn! Finn mig ekki beint hér niðri í kjallara - þó það fari ágætilega um mig. En allavega þegar allt er komið í samband og ég get tengt myndavélina við tölvuna þá skal ég skanna nokkrar af Antons teikningum til að sýna ykkur hvað hann er að aðhafast þessa dagana.

 

Á morgun rennur hrekkjavakan í garð, og ég á fullt af nammi í húsinu núna - vildi helst opna alla pokana og byrja að hakka almennilega í mig, bara verð að fá að sleppa mér svona einn dag...

Reyndar er ég búin að taka einn dag í æfingarhrekkjavöku - stalst til að opna einn helvítis MARS poka,  úðaði allsvakalega í mig - og nú er að læðast fram ein skelfileg bóla á miðja hökuna mína, bara glæsileg...

 

Krakkarnir vildu ekki notast við neitt af þeim búningum sem þegar hafa safnast í gegnum árin ofan í búningakistuna hér svo að ég mátti fara í leiðangur með þeim og versla allt  nýtt! Arína verður skellibjalla þettað árið, hún og Snoopy sem sagt í stíl báðar með sína vængi! Anton verður alger mafíuósi, svona í Al Capone stíl - sem sagt í jakkafötum og með hatt! Alma verður í lögreglubúning, sérsveitar búning, og  hún ætlar að handtaka Anton með sínum járnum... Gaman af henni í búningabúðinni, flestir stelpubúningarnir eru þar í prinsessustíl, og minni dömu bara hryllir við slíkum ósköpum, í fyrra var hún læknir og slökkviliðsmaður - nú er það lögreglusérsveitarmaður...

 

Það minnir mig á graskerjaleiðangurinn nýyfirstaðna, þegar hún og Ágústa Önnudóttir voru að ræða saman um graskerin sín og hvað ætti nú að gera við þau! Ágústa ætlaði sko að mála sitt bleikt og setja á það glimmer, og Ölmu viðbrögð voru bara: WHY?

 

Það er enginn glimmer og glamúr til í henni Ölmu, hún sat í hlöðunni þarna við akurinn á mjólkurbrúsa - sötrandi epladjús, þegar hún tilkynnti að hún vildi ekki fara aftur heim, hún er  alger sveitaunnandi!

 

 

Ég þarf að fara greiða Antoni eitthvað fínt, það er ein sjónvarpsstöðin hér sem ætlar að heimsækja hans skóla í dag - eins gott að minn verði allavega greiddur ef ske kynni að hann yrði fyrir framan upptökuvél... (ég get bara ekki hætt að skrifa núna, þetta minnti mig á þegar Stundin Okkar heimsótti barnaskólann minn, og myndaðar voru raðirnar úti sem Diddi Hall stjórnaði svo flott frá svölunum. Þar stóð ég í minni röð við hliðina á Sísí, íklædd dökkblárri Hekluúlpunni með hettuna yfir dúskhúfu,  bara alveg eins og risastór strútur - það sást allavega vel í mig...)


Jæja esskurnar mínar, þið sem ekki nennið að kvitta - megið alveg gera það svona allavega í tíunda hvert skipti sem þið kíkið inn! Það gefur mér innblástur að skjá ykkur hér...


Bestu kveðjur

 

Stella

 

 

Skrifað 31.10.2008 kl. 4:17 af Stellu sléttubúa

Bein slóð á færslu

11 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

25.10.2008

Ég held ég ætti að ganga um með upptökutæki,

Skoða nánar

21.10.2008

Eitthvað verð ég að...

Skoða nánar

16.10.2008

Algerlega orðavant bara.

Skoða nánar

11.10.2008

Það er ekki oft sem ég finn sjálfa mig kjaftstopp,

Skoða nánar

7.10.2008

Bara alveg glær...

Skoða nánar

4.10.2008

Það er fátt betra ...

Skoða nánar

2.10.2008

Það er ekkert smá sem tíminn æðir áfram,

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 13
Gestir í dag: 6
Flettingar í gær: 101
Gestir í gær: 17
Samtals flettingar: 117559
Samtals gestir: 26628
Tölur uppfærðar: 21.3.2010 03:04:43
clockhere
eXTReMe Tracker