Blogg
10.3.2010
Vikan er varla hálfnuð hér hjá mér,
...svo ekki vænta tíðinda enn - það er ekkert að frétta frá okkur! Yfirmaður minn, Paul, var kallaður til "jury duty" í réttarsal og hann er skíthræddur við að komast ekkert til vinnu á næstunni. Þetta er nú einn góður punktur við að vera ekki kominn með ríkisborgararéttinn, maður þarf ekki að sitja í vitnastúkunni með ellefu öðrum og svo kannski festast þar launalaus yfir langdregnum yfirheyrslum og ljótum málum. Hvað er dury duty annars kallað á ylhýru íslenskunni? Annars hefur mér hingað til þótt þetta svolítið spennandi hlutverk en í dag, meðan ég vinn fyrir brauðinu og álegginu, þá myndum við ekki ráða við launamissinn. Það eru einhverjir dagpeningar í boði en mér skilst að það séu upphæðir sem voru ákveðnar 1945 og hafa ekki verið uppfærðar í takt við veruleikann. (næ ekki að minnka textan hér af einhverjum undarlegum ástæðum)
Ég er bara svakalega dugleg þessa dagana, svona þó ég segi sjálf frá. Hef verið að tæta hér um umhverfið á nýju skónum sem eru svoooo góðir að það er bara draumur einn. Ekkert dýrir skór, ég bara vandaði valið vel, mátaði eins og dýrvitlaus skó-óð kelling í teiknimynd væri og hætti ekki fyrr en ég fann skó sem voru eins og sniðnir á mínar fætur. Ég gekk í gærmorgun 6,4 kílómetra á 54 mínútum og sannaði þannig fyrir bóndanum að hann er best geymdur heima meðan ég æði hér um - hann var að bjóðast til að labba með og halda mér félagsskap, þessi elska. Það er svolítið erfitt að finna hér gönguleiðir, svona sem ég þarf ekki fyrst að koma mér upp í bílinn og koma mér á staðinn. Lítið um gangstéttir milli húsahverfa - og mörg hverfi ekki einu sinni með gangstéttir. Við búum hér alveg norðvestast í okkar bæjarfélagi, og bara áin norðan við okkur svo ég mun brosa á móti sólu gangandi í suður átt frá sama byrjunarpunktinum. Stefnan mín er að reyna ganga 10 kílómetra annan hvern dag - mér mun bara ekki gefast tími í meira en það. Ja ekki nema ég kveðji krakkana áður en þau fari í skólabílinn og taki þannig líka áhættuna um að ég sjái þau ekki heldur er ég kem heim seint frá vinnu að kveldi. Mest um vert þessa dagana er samt að finna orkuna í að hefja betlið, ég verð að finna nógu marga aðila til að styrkja brjóstkrabbameinsátakið um heila átján hundruð dollara - og þó að margt smátt geri eitt stórt, þá er þetta ansi stór upphæð til að reyna draga upp úr vösum vina, vandamanna, samstarfsfélaga og bara "palla út í bæ"...
Vorið er farið að banka upp á hér á slóðum, held að síðustu snjóruðningarir hafi kvatt í gær - og mikið svakalega kom bærinn skítugur upp undan snjónum. Kominn tími á að senda alla sem dæmdir hafa verið til samfélagsþjónustu, fyrir umferðarbrot og annað slíkt, út í appelsínugulu vestunum með ruslapoka sér í hönd - um að gera að nýta þá í tiltekt á bæjarfélaginu, eða ég myndi segja það upphátt og jafnvel öskra það ef ég hefði kosningarrétt ;-)
Krakkarnir eru í góðum gír, standa sig vel í skólanum og hafa tekið þessum breytingum á heimilishaldinu vel. Vorum á tónleikum í skólanum hennar Arínu í gær og líkt og ævinlega þá bara trúir maður vart eigin eyrum, þessir krakkar eru að standa sig svo vel í strengjasveitinni. Við erum svo heppin hér að tónlistarnámið er innifalið í skólanum hér og bara leiga á hljóðfærum sem lendir á okkur og það eru engar upphæðir til að væla yfir. Ég skil alltaf eftir lista handa þeim til að segja þeim hvað gera þarf þegar þau koma heim frá skóla - og viti menn, það sem er niðurskrifað á blað hljómar víst ekki eins illa og ef mamma segir það upphátt! Þau elska listann! Ég skal gefa ykkur einn sem dæmi;
The list!!
Put your stuff away, don´t forget to put the shoes in the closet.
Get some snack (Arína you may bake brownies)
Do your homework - practice the instruments
Get the laundry from downstairs and then put it all were it belongs
CHILLAX...
See you tonite (já svona bara upp á enskuna, ég veit fussum svei)
Þetta gera þau eins og ekkert sé, en ef ég væri til staðar til að biðja þau um að gera þetta væri vælt og skælt og kvartað út í eitt. Stundum þurfa þau að ryksuga í kjallaranum, eða þrífa sitt baðherbergi - ég reyni að hafa eitthvað á listanum á hverjum degi sem hálpar til við heimilishaldið en svo hef ég líka bara skrifað "have fun" til tilbreytingar.
Tilneyddi sparnaðargírinn okkar hefur vissulega haft mikil áhrif á heimilishaldið, við segjum mikið oftar nei en áður var, en þessum nei-um fækkar því þau vita hvar við stöndum. Arína átti einn góðan gullmola um daginn er hún sat og horfði á sjónvarpið sem nú sýnir bara helstu fréttastöðvarnar hér sem nást fyrir ekki neitt. Hún var að leita að góðu efni til að horfa á og eftir að hafa kíkt á það sem í boði var sagðist hún kunna betur við að hafa ekkert val því að þá væri hún ekki að fikta í fjarstýringunni til að leita að einhverju öðru! Já bara betra að hafa ekki um neitt að velja...
En nóg í bili
Bestu kveðjur og ástarþakkir fyrir innlitið
Stella

